Dale Carnegie þjálfun© - Dale Carnegie á Íslandi

Um okkur

Dale Carnegie á Íslandi Námskeið Fyrirtækjalausnir Um okkur Hafðu samband
Viðskiptavinir Ráðgjafar Þjálfarar Styrkir Atvinnutækifæri
Dale Carnegie um allan heim
Mitt svæði
Karfa
Frítt - Leyndarmál velgengninnar - Gullna reglubókin
Póstlisti


Hver erum við

Það var árið 1912 sem Dale Carnegie hélt sitt fyrsta námskeið. Upphaflega var námskeiðið hugsað sem ræðunámskeið en þróaðist smátt og smátt í námskeið sem hjálpaði fólki að efla sjálfstraust, bæta mannleg samskipti og vinna á áhyggjum og kvíða. Í kringum námskeiðið byggði Dale Carnegie upp, ásamt konu sinni Dorothy Carnegie, fyrirtæki sem nú teygir anga sína í yfir 70 lönd og hefur rúmlega 120 skrifstofur. Með árunum hefur Dale Carnegie námskeiðið breyst gríðarlega. Meiri áhersla er nú lögð á markmiðasetningu og að efla leiðtogahæfileika fólks. Þetta hefur gert það að verkum að mörg af stærstu fyrirtækjum heims senda reglulega fólk í gegnum Dale Carnegie námskeiðið. Til dæmis hafa rúmlega 5.000 starfsmenn General Electric farið í gegnum þjálfun Dale Carnegie. Í dag er Dale Carnegie leiðandi fyrirtæki í þjálfun starfsfólks fyrirtækja út um allan heim og býður alhliða þjálfun í stjórnun og sölumennsku. Hjá fyrirtækinu starfa um 2.700 leiðbeinendur.

Dale Carnegie námskeiðið var haldið á Íslandi í fyrsta skipti árið 1965. Það var viðskiptafræðingurinn Konráð Adolphsson sem fékk einkaleyfi frá Dale Carnegie í Bandaríkjunum og hefur hann útskrifað rúmlega 8.000 manns á Íslandi á þessu tímabili. Á Íslandi hefur verið boðið upp á Dale Carnegie námskeiðið, sölunámskeið og leiðtogaþjálfun fyrir stjórnendur; einnig hefur verið boðið upp á styttri námskeið með jöfnu millibili. Á haust dögum 2001 tók Helgi Rúnar Óskarsson, B.S. í viðskiptafræði, við rekstri Dale Carnegie á Íslandi. Síðan hefur fyrirtækið vaxið jafnt og þétt. Þjálfurum okkar fjölgar stöðugt til að mæta ört vaxandi eftirspurn. Jafnframt hafa smátt og smátt verið kynnt ný námskeið sem verið hafa í þróun hjá Dale Carnegie erlendis g hafa þau námskeið fengið mjög góðar viðtökur.

Núverandi eigendur Dale Carnegie á Íslandi eru Unnur Magnúsdóttir og Haukur Víðisson en þau keyptu fyrirtækið haustið 2006.
ISO vottun

Dale Carnegie er ISO 9000:2001 vottað fyrirtæki. Sá heiður krefst þess að við mælum árangur okkar þjálfunar markvisst. Öll námskeið um allan heim eru metin eftir samskonar kvarða. Samkvæmt þeim kvarða eru 99% þátttakenda á námskeiðum okkar ánægð með þjálfunina.

Í flestum ríkjum Bandaríkjanna er Dale Carnegie námskeiðið metið til námseininga í mennta- og háskólum. Unnið er að því að fá námskeiðin metin á sama hátt hér á Íslandi.








Ármúla 11 · 108 Reykjavik · Iceland · (+354) 555 7080
Lögfræðiupplýsingar | Höfundaréttur