Fáðu aukna innsýn
Við bjóðum viðskiptavinum okkar árangursríkt matstæki sem kallast Innsýn. Um er að ræða mat sem aðstoðar við að greina þörfina fyrir þjálfun ásamt því að meta einstaklinga innan fyrirtækisins og þannig gera þjálfunina einstaklingsmiðaðri en ella.
Innsýn er ætlað að hámarka frammistöðu starfsmanna með því að auka mælanleika árangurs þjálfunarlausnarinnar sem lögð er fram.
Metnir eru frammistöðuþættir sem skipta sköpum um árangur starfsmannsins. Matið fer fram áður en að þjálfunin hefst og einnig að henni lokinni. Með því má sjá svart á hvítu hvaða árangri þjálfunin skilar.
Mat fyrir þjálfunina gefur til kynna á hvaða svið viðkomandi starfsmaður þarf að leggja sérstaka áherslu. Það gefur þjálfurum okkar skýra mynd af hópnum svo þjálfunin miðast enn frekar að þörfum hans.
Mat að þjálfun lokinni mælir árangur verkefnisins. Sýnir nýja styrkleika starfsmannsins og gefur til kynna hvar möguleikar viðkomandi liggja með tilliti til áframhaldandi starfsþróunar.
Markvissari þjálfun
Það er engin ein lausn sem hentar öllum. Sendu starfsmannahóp þinn í gegnum Innsýn og fáðu markvissa sýn á hvað það er sem leggja þarf áherslu á í þjálfun þíns fólks. Þú uppskerð hnitmiðaðra þjálfunarferli, öruggari árangur og sterkari starfsmenn.
Þjálfunin sniðin að þörfum fyrirtækisins
Með því að senda þína starfsmenn í gegnum Innsýn stígur þú skref í átt til stöðugrar framþróunar sem þú getur auk þess fært sönnur á. Matið gefur skýrar niðurstöður sem hægt er að bera saman frá einum tíma til annars og sýnir stöðu starfsmannsins á hverjum tíma.
Með mati fyrir þjálfun og að henni lokinni má mæla framfarir einstaklinga og hvernig þær framfarir hafa áhrif á frammistöðu þíns fyrirtækis. Þú sérð svart á hvítu hvaða áhrif Dale Carnegie þjálfunin hefur á þitt fyrirtæki.
Nafnlaust mat
Innsýn er nafnlaust matferli sem tryggir áreiðanleika niðurstaðna. Viðkomandi starfsmaður velur 3-8 samstarfsmenn ásamt yfirmanni til að meta sig en getur ekki séð mat hvers og eins heldur aðeins heildarniðurstöður.
Einfalt og hraðvirkt - eingöngu á netinu
Eftir að starfsmaðurinn hefur sent inn nöfn og netföng þeirra sem meta hann sér tölvukerfi Dale Carnegie um að senda viðkomandi aðilum vefslóð þar sem matið fer fram. Þeir fylla út matsformið samkvæmt leiðbeiningum. Þegar allir hafa lokið matinu fær viðkomandi starfsmaður í hendur skýrslu um niðurstöður. Þjálfari námskeiðsins fær skýrsluna einnig í hendur til að hámarka árangur viðkomandi á námskeiðinu.
Sérsniðið mat
Hægt er að sérsníða matið að þörfum þíns fyrirtækis t.d. með spurningum sem lúta að gildum og/eða stefnu þíns fyrirtækis.
Lausn sem ber árangur
Þjálfun á ekki bara að vera skemmtileg. Hún Á að bera árangur og skila sér til baka í aukinni arðsemi þíns fyrirtækis. Með Innsýn færðu skýra mynd af því hvar þitt fólk stendur og í framhaldinu hnitmiðaðri þjálfunarlausn sem hentar þínu fyrirtæki. Kynntu þér málið. Nánari upplýsingar veitir Unnur Magnúsdóttir, unnurm@dalecarnegie.is
Sýnishorn af matsskýrslum
Sýnishorn - almennt mat
Synishorn Leidtogathroun
|