Reglur í mannlegum samskiptum
|
Áhersla Dale Carnegie hefur alltaf verið á fólk og samskipti þeirra á milli. Við höfum sterka skoðun á því hvernig fólk á að koma fram hvert við annað hvort sem um er að ræða viðskiptavini, fjölskyldumeðlimi, samstarfsfólk eða annað samferðafólk. Hæfni okkar í samskiptum getur ráðið úrslitum um árangurinn sem við náum í lífinu.
Hér eru dæmi um reglur Dale Carnegie í samskiptum:
Vertu vingjarnlegri einstaklingur
- Ekki gagnrýna, fordæma eða kvarta
- Vertu heiðarlegur og einlægur í viðurkenningu þinni
- Sýndu öðrum einlægan áhuga
- Vertu góður áheyrandi. Hvettu aðra til þess að tala um sjálfa sig
- Láttu viðmælanda þínum finnast hann vera mikilvægur- og vertu einlægur í viðleitni þinni
Snúðu fólki á þitt mál
- Eina leiðin til að sigra í deilum er að forðast þær
- Virtu skoðanir annarra. Segðu aldrei „Þetta er ekki rétt hjá þér"
- Ef þú hefur rangt fyrir þér viðurkenndu það strax og afdráttarlaust
- Reyndu í einlægni að setja þig í spor annarra
- Höfðaðu til þess besta í öðrum
Vertu leiðtogi
- Byrjaðu á hrósi og einlægri viðurkenningu
- Talaðu um þín eigin mistök áður en þú gagnrýnir aðra
- Varpaðu fram spurningum í stað þess að gefa skipanir
- Lofaðu allar framfarir, stórar og smáar. Vertu „einlægur í viðurkenningu þinni og örlátur á hrósið"
- Hrósaðu fólki, það vill standa undir því
|
|