...Leiðir til forystu
 
  Prenta 

Áhrifaríkar kynningar

Upplýsingar um námskeið

Eitt það mikilvægasta sem við gerum í starfi og leik er að kynna öðrum hugmyndir okkar, vöru eða þjónustu. Því betur sem við komum skilaboðum á framfæri náum við meiri árangri á styttri tíma. Á námskeiðinu Áhrifaríkar kynningar læra þátttakendur á tveimur dögum tækni sem hlotið hefur mikið lof. Námskeiðið kemst næst því að fá einkakennslu í kynningartækni. Fluttar eru 7 kynningar á tveimur dögum sem teknar eru upp á myndband. Eftir hverja kynningu fá allir þátttakendur „maður á mann" leiðsögn frá sérþjálfuðum þjálfurum okkar.
 
Fyrirtæki eins og Íslandsbanki, Landsvirkjun, Marel, Össur, Verkís, VÍS, Deloitte, Landsbanki Íslands, Merrill Lynch, IBM, Vistor, Opin kerfi, Deutsche Bank, SEB og fleiri hafa sent stjórnendur úr sínum röðum á þetta námskeið hjá Dale Carnegie til að efla hæfileika þeirra í að halda kynningar. 

 
Land Staðsetning Dagsetning    
Það eru engir viðburðir á næstunni.
 

Fyrir hverja er námskeiðið

Þetta krefjandi námskeið er ætlað þeim sem leggja ríka áherslu á faglega framkomu, kraftmiklar og hnitmiðaðar kynningar þar sem oftar en ekki þarf að taka á nýju og krefjandi viðfangsefni. Námskeiðið gagnast þeim sem hafa reynslu af því að halda kynningar eða að koma fram og halda ræður. Það er einkar gagnlegt fyrir þá sem þurfa að tala fyrir framan hópa, sölufólk og þá sem þurfa að koma fram í fjölmiðlum. Þetta námskeið er ekki ætlað þeim sem ekki hafa talað fyrir framan hóp áður og eiga mjög erfitt með að standa fyrir framan hóp og tjá sig.
 

 

 

 
 
 


maí 2012
S M Þ M F F L
01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31
 
 

Ármúli 11, Reykjavik, 108, Ísland
S. (+354) 555 7080

Fylgdu okkur á

Skráðu þig á póstlista Sækja

 
© 2012 Dale Carnegie þjálfun. Allur réttur áskilinn.
Vefsíða hönnuð og þróuð af Americaneagle.com