...Leiðir til forystu
 
  Prenta 

Leiðtogaþjálfun fyrir stjórnendur

Upplýsingar um námskeið

Fyrir þá sem standa í eldlínunni er ekki nóg að vera góður stjórnandi. Það krefst hæfni raunverulegs leiðtoga. Þetta veist þú og Dale Carnegie þjálfunin líka. Til að gefa þér bestu möguleikana á að hámarka hæfni þína sem leiðtoga höfum við endurbætt námskeiðið Leiðtogaþjálfun fyrir stjórnendur. Þetta frábæra námskeið færir þér í hendur réttu tæknina til að koma auga á og þroska þá leiðtogahæfileika sem búa í þér. Þú öðlast þekkingu, sérfræðikunnáttu og lærir aðferðir þeirra sem koma fram með nýjungar og taka mikilvægar ákvarðanir. Þú hagnast á innsæi reyndra leiðtoga sem hafa sýnt snilli sína í ná árangri í lífinu og verið samstíga þeim öru breytingum sem eiga sér stað í heiminum.
 
Leiðtogaþjálfun fyrir stjórnendur er byggð upp á ,,maður á mann" kennslu, gagnvirkum liðsæfingum, reynslu sem þátttakendur deila með öðrum og fjölbreyttri hópvinnu. Þannig öðlast þú ákveðna hæfileika sem fylgja því að læra með öðrum.
 
 
 
Þú lærir að:
Skapa sameiginlega sýn
Þróa áætlanir og hrinda þeim í framkvæmd
Taka ígrundaða áhættu og hvetja fólk til að taka áhættu og sýna frumkvæði
Flykkja fólki í lið með þér
Afla samvinnu á öllum stigum
Leiða vinningslið, deild eða skipulagsheild
Veita öðrum umboð til framkvæmda og skila þannig enn meiri árangri
Koma auga á og viðurkenna góðan árangur einstaklinga og liðsheilda
Skilgreina kröfur og gera fólk ábyrgt fyrir sínum verkefnum
Vinna eftir 8 þrepa áætlunarferli sem skilar frábærum árangri
Setja árangursmarkmið í takt við heildaráætlanir
Þróa með þér sveigjanlegan leiðtogastíl
Eiga samskipti sem einkennast af sjálfstrausti
Móta liðsheild sem vinnur saman og skilar frábærum árangri
 
Faðir nútíma stjórnunarhugmynda er Peter Drucker. Hugmyndir hans og annarra þekktra leiðtoga eru settar fram í sérstakri útgáfu af bókinni Leader to Leader sem er sérsniðin fyrir Leiðtogaþjálfun fyrir stjórnendur. Í bókinni er skoðað mikilvægi þess að þróa eignarréttinn í hverju fyrirtæki, nauðsyn leiðtoga á að ,,deila heiðrinum" og úrslitaþýðingu þess að skapa skuldbindingu og traust.
 
Það sem er mikilvægast er að Leiðtogaþjálfun fyrir stjórnendur kennir þér hvernig nýjar hugmyndir geta leitt til framúrskarandi árangurs. Árangurs sem þú og fyrirtæki þitt eigið að mæla í endanlegum ávinningi.
 
 

 
Land Staðsetning Dagsetning    
Ísland Reykjavik Þriðjudagur, 02 október, 2012 nánari upplýsingar
Upplýsingar um námskeið
Þriðjudagur, 02 október, 2012
08:30 - 12:00
7 skipti með viku millibili
Ármúli 11
Reykjavik, 108
Iceland
(+354) 555 7080
kr154,000.00
Góður stjórnandi í dag er ekki sjálfkrafa álitinn góður leiðtogi. Skýr skil eru á milli þessara hlutverka. Á námskeiðinu lærir þú í hverju munurinn liggur og þróar hæfileika þína í átt að kröftugri og árangursríkari leiðtogahæfni. Hættu að stýra og byrjaðu að leiða.

Tungumál:Icelandic
 
Skrá
 

Fyrir hverja er námskeiðið

Fólk á öllum sviðum fyrirtækisins sem hefur áhuga á að ná hámarksárangri í starfi. Nægir að nefna skrifstofustjóra, verkstjóra, deildarstjóra, aðstoðarstjórnendur og framkvæmdastjóra. Starfsmenn sem leiða hópa, stýra verkefnum eða eru í forsvari fyrir nefndum, hafa einnig gagn af Leiðtogaþjálfuninni fyrir stjórnendur. Það sem er mikilvægast er að fólk úr ólíkum geirum viðskiptalífsins læri að takast á við þær margvíslegu áskoranir sem fylgja stjórnunarhlutverkinu.
 

 

 

 
 
 


maí 2012
S M Þ M F F L
01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31
 
 

Ármúli 11, Reykjavik, 108, Ísland
S. (+354) 555 7080

Fylgdu okkur á

Skráðu þig á póstlista Sækja

 
© 2012 Dale Carnegie þjálfun. Allur réttur áskilinn.
Vefsíða hönnuð og þróuð af Americaneagle.com