Stjórnun viðskiptatengsla
Samkeppnin um viðskiptavininn hefur líklega aldrei verið meiri en nú og kostnaðurinn við sóknarsölu verður því fyrir- ferðarmeiri en áður. Mikilvægi þess að viðhalda og bæta viðskipti núverandi viðskiptavina er því lykillinn að stöðugum og ábatasömum reksti. Það er því engin tilviljun að fyrirtæki leggja æ meiri áherslu á að vera með kröftuga viðskiptastýringu sem skilar sér í öruggu tekjuflæði.
Starf viðskiptastjóra er vandasamt þar sem hann skapar góð tengsl við viðskiptavini sína og því getur stundum verið erfitt að halda á lofti fagmennsku og ákveðni í að selja meira.
Þetta nýja námskeið úr smiðju Dale Carnegie hefur verið sett saman með það í huga að hjálpa viðskiptastjórum að missa aldrei sjónar á markmiði sínu sem er að viðhalda og auka sölu. Þjálfaðar eru aðferðir sem virka með það að markmiði að:
- viðhalda góðu sambandi
- sjá fyrir og þekkja þarfir
- veita framúrskarandi þjónustu
- skapa tryggð sem erfitt er að rjúfa
- viðhalda fyrirmyndar fagmennsku
Þátttakendur tileinka sér samskiptatækni og samningatækni sem skilar auknu virði til viðskiptavina með það að markmiði að auka sölu.
| Land |
Staðsetning |
Dagsetning |
|
|
|
Ísland
|
Reykjavik
|
Fimmtudagur, 01 nóvember, 2012
|
nánari upplýsingar
|
Skrá
|
Fyrir hverja er námskeiðið
Námskeiðið er fyrir alla þá sem sjá um að stýra endurteknum viðskiptum við
fyrirtæki sitt.