Breytingar á skráningu 

Greiðslur

Ganga þarf frá greiðslu eigi síðar en tveimur vikum áður en námskeið hefst.

 

 Ánægjuábyrgð

Við tökum ábyrgð á námskeiðum okkar. Ef þú hefur mætt í alla tímana og ert af einhverjum ástæðum óánægð(ur) með árangur þinn á námskeiðinu hafðu þá samband og við endurgreiðum þér námskeiðið að fullu.

 

Breytingar á skráningu

Hægt er að flytja sig á milli hópa án aukagjalds að því gefnu að laus pláss séu í viðkomandi hópi. Hafðu samband við skrifstofu okkar í síma 555-7080 eða þjálfarann þinn.  Ef kostnaður vegna breytinga á reikningi hlýst af flutningi ber þátttandinn hann.

 

Hætt við námskeið

Við endurgreiðum námskeiðið að fullu sé hætt við og það tilkynnt til skrifstofu okkar með sannarlegum hætti að minnsta kosti viku áður en námskeið hefst. Þátttakendur sem hætta við eftir að námskeið er hafið þurfa að bera eftirfarandi kostnað:

Eftir fyrsta tíma: kr. 30.000

Eftir fyrstu tvo tímana: kr. 40.000

Ef hætt er við eftir þrjá tíma eða síðar á námskeiðinu greiðist námskeiðið að fullu. Þetta á við um öll lemgri námskeið. Ef hætt er við styttri námskeið eftir að þau eru hafin greiðist námskeiðið að fullu. Dale Carnegie þjálfun áskilur sér rétt til að hætta við eða færa til námskeið á dagskrá.