



|
 |
Sérstaða okkar
Fjölmörg fyrirtæki, stór sem smá, gefa sig út fyrir að geta leyst vandamál og bætt stöðu fyrirtækja. Þetta er það sem skilur okkur frá öðrum:
Frumkvöðlar í leiðsögn til fyrirtækja (Business Coaching)
Starf okkar hófst árið 1912 þegar Dale Carnegie tók til við að leiðbeina fólki í viðskiptum við að tala fyrir framan stærri hópa og í kynningartækni. Fljótt þróaðist starf hans í þá átt að liðsinna fyrirtækjum við að ná markmiðum sínum með því að leggja rækt við stjórnun, tjáskipti og samskiptahæfni. Dale Carnegie skrifaði bókina Vinsældir og áhrif sem handbók um hvernig á að byggja upp sambönd.
Meira en 7 milljónir manna hafa upplifað árangur þjálfunar okkar. Á hverju ári fara þúsundir á námskeiðin okkar, bæði á eigin vegum og á vegum fyrirtækja. Það er á þessum grunni sem við byggjum sérsniðnu fyrirtækjalausnirnar sem við bjóðum.
Sérstaða okkar byggist á yfirgripsmikilli þekkingu og reynslu á fyrirtækjaþjálfun sem gerir Dale Carnegie leiðandi í fyrirtækjalausnum í heiminum.
Okkar starf
Hjá okkur fjárfesta fyrirtæki í skýrum lausnum og ábyrgð okkar til að skila hámarks árangri með og í gegnum starfsfólk fyrirtækjanna. Við leggjum okkur fram um að kynna okkur veruleika fyrirtækja ofan í kjölinn, markmið, áherslur og gildi þeirra. Markmið okkar er að sjá fyrirtækjum fyrir sérsniðnum lausnum sem hjálpa þeim að ná markmiðum sínum hraðar og af meiri festu en ella.
Ferli okkar við þróun fyrirtækjalausna er byggt á þaulreyndum leiðum sem hafa það aðal markmið að skila skjótum og mælanlegum árangri fyrir fyrirtækin sem við störfum með og tryggja um leið viðhald þessa árangurs. Það er okkar skuldbinding.
|
|
 |
| Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um fyrirtækjalausnir. |
 |
|