Miðvikudagur, 10 október, 2018
Framúrskarandi öryggismenning
Miðvikudagur, 10 október, 2018
13:00 - 16:30
Skrá
Flytja í Outlook
Markmið námskeiðsins er að hafa áhrif á viðhorf einstaklinga, efla frumkvæði þeirra í að láta öryggismál sig varða og auka ábyrgðartilfinningu fyrir eigin öryggi og starfsmanna. Stuðst verður við fjögurra þrepa ferli í gegnum nám skeiðið: sýn, stöðumat, áhættumat og innleiðingu. Þátttakendur vinna að raunverulegu úrbótaverkefni er lýtur að því að innleiða sýn fyrirtækisins í öryggismálum.
//Fyrir hverja: Námskeiðið er bæði fyrir þau fyrirtæki sem hafa sett sér sýn og stefnu í öryggis málum og hin sem vilja stíga sín fyrstu skref. Námskeiðið nýtist öllum þeim sem láta sig öryggismál fyrirtækisins varða.
//Ávinningur:
• Skapar sýn um framúrskarandi árangur í öryggismálum
• Byggir upp sjálfstraust og hæfni til að sýna frumkvæði
• Styrkir samskiptahæfni til að bregðast við krefjandi aðstæðum
• Eflir tjáskipti til að höfða til ólíkra einstaklinga
• Þroskar hæfni í 360° stjórnun
• Eykur hæfni til að hafa áhrif á viðhorf til öryggismála